Leikfimi
Leik mér létt að endarími.
Línur nokkrar saman lími
Stöku sinnum höfuðstaf set
og stuðla kvæðið ef ég það get.
Verða úr því vonlaus kvæði.
Væri betra að gleyma bæði
bragarhátt og boðorðunum
og
sleppa málinu lausu
leyfa orðunum að
eignast saman
setningar.
Línur nokkrar saman lími
Stöku sinnum höfuðstaf set
og stuðla kvæðið ef ég það get.
Verða úr því vonlaus kvæði.
Væri betra að gleyma bæði
bragarhátt og boðorðunum
og
sleppa málinu lausu
leyfa orðunum að
eignast saman
setningar.
1995 allur réttur áskilinn höfundi.