umgumlun
fara í nækskóm nýjum hvítum
sanka að sér & sitja um
stelpur í bleyti
hreyfill: snýst nógu hratt, sjást ekki spaðarnir
spaði: snýst nógu hratt, sérð ekki litla manninn
kastar upp brakinu, vísifingur sem er vonandi á leiðinni eitthvað annað
líka leggst á óklæddar axlir af handahófi
ef athyglinni náð er vonast til þess að punktalínunum sé beint á hárréttu augnabliki að fyrrnefndu
og það bogmaður í augunum og það bogmaður sem sést, bogmaður í buxurnar seinna
-
uppköst skapa þreytu - þreytan þorsta
fólk felandi sig í fimmtán einsmannsröðum við barinn eins og til að lesa af úrvalinu eitthvað til að segja eftir að það er búið að fá uppgefna heimsóknartíðni fórnarlambsins
eða öfugt
reynir svo (og ég) að innbyrða sannleikinn
skiptir á honum og öðru mikilvægu sín á milli forðum áðan rúlluðu
-
skola,
endurtaka löðrun
skola endurtaka:
löðrun