Draumur eða?
Undir auðninni
sem starir bláköldum augum út í veruleikann,
og svíður fyrir hvað útlit hennar er fábrotið,
og öðruvísi en aðrir staðir í kring
býr neisti
hugsanir skjóta upp kollinum í annars líflausu landslagi
hugsa um hvort það sé annar staður þarna úti
sem kannski er að hugsa það sama
og vonast eftir sameiningu..
Risið í landslaginu breytir um lit eftir því sem ofar dregur
frá litlausri sléttunni
yfir í himinbláa klettana sem umkringja allt
augun glennast upp
munnurinn rekur upp óp
og eldurinn brýst út úr faðmi lífsins
en svo vakna ég og fatta að þetta var bara draumur..