Lofsöngur Hvíta hússins
Hversu ljúft vær\'að ljá
hverju landi og strönd
styrka hjálpandi hönd
þannig hamingju nyti.

Ef við frið myndum fá
mun það festa vor bönd
heimsins legir og lönd
mikla lánsemi hlyti.

Fari stjörnur á stjá
við það sturlast hvert strá
sjálfar öldurnar á
er við göngum mót glaum
og svo eyðum við nóttinn\'að eilífu saman
því að við erum eitt og veröldin ný.  
Lára Ómarsdóttir
1971 - ...
Ort við lag Bandaríska þjóðsöngsins

Allur réttur áskilinn höfundi


Ljóð eftir Láru

Dauðinn
Lofsöngur Hvíta hússins
Unaðsstökur
Seinasta augnablikið
Fylking
Missir
Sumri hallar