Limrur
Skýrsla landlæknis 1993:

Ég frétti að Véhildur veira
í vatnsnuddi hitti hann Geira.
Hún gaf honum kvef
og kláða í nef
með krónískri bólgu í eyra.


Frumvarp til búvörulaga:

Þegar bændurnir bera skít á
það borgarbúarnir líta\' á.
Skældir í framan
í skemmtiferð saman
að skoða Gullfoss í Hvítá.


Frumvarp til kvótalaga:

Gunnvör í Hnífsdal var gátlaus
en Guðný í Ólafsvík látlaus.
Gunnvör lauslát
en Guðný kaus gát
því bæði var kvóta og bátlaus.


Gunnar:

Gunnar bauð gestum í geim
en gaf engar ölveigar þeim.
Vakti það furðu
og fjölmargir urðu
fúlir, og héldu heim.


Hundabúskapur:

Á Hóli bjó Finnbogi fundvísi,
en Stefán bróðir hans stundvísi.
Byrjaði í Mýsundi
búskap með vísundi
og bar síðan nafnið: Hinn hundvísi.


Tina Turner:

Austur í Tungum ég sá Tínu
Turner, sofandi á dínu.
Í vaxbornum frakka
af Valda á Bakka
og vakti það talsverða kátínu.


Sumarstemma:

Hjörleifur grillaði humar
hala með lauk í sumar.
Með gamanmál fór
og gaf öllum bjór.
Glöddust þá fjölmargir gumar.
 
Þorsteinn Sverrisson
1964 - ...


Ljóð eftir Þorstein Sverrisson

Limrur
Arfgengi
Afturgöngur
Flugan og ég
Um nótt
Sættir
Að vorlagi
Barnsminni (lengra)
Sitjandi fólk
Nokkrar vísur um fallandi snjókorn og ýmislegt annað sem fellur
Dufþakur