Kynning
Við töluðum saman
með augunum
hljóðunum
sem andvörpuðu þungum
þögnum
brutu öll bönd
leystu heiminn úr læðingi
ný endimörk
skilningsvitanna
sem breyttu heiminum
sköpuðu hann upp á nýtt
meðan heimurinn hringsnérist
stöðvaðist tíminn
og eilíft andartak hélt okkur
í greipum sínum
upphaf af einhverju ótrúlegu
sem að eilífu stóð
en aldrei varð
því orðin vöntuðu
með augunum
hljóðunum
sem andvörpuðu þungum
þögnum
brutu öll bönd
leystu heiminn úr læðingi
ný endimörk
skilningsvitanna
sem breyttu heiminum
sköpuðu hann upp á nýtt
meðan heimurinn hringsnérist
stöðvaðist tíminn
og eilíft andartak hélt okkur
í greipum sínum
upphaf af einhverju ótrúlegu
sem að eilífu stóð
en aldrei varð
því orðin vöntuðu