Lygin
Nístandi sársaukinn kvelur mig
þegar þú reynir að klóra í bakkann
þekki ég þig nógu vel
til að lesa úr blæbrigðum raddar þinnar?
Lygin er öflugt vopn og kvalafullt
sem smýgur inn á milli steinanna í fjöruborðinu
og litar allt sem hún kemur nálægt
það sem áður var fagurblátt og lyngt
er nú öskrandi grænt og órólegt
Djúpir hafstraumar sem taka sínar eigin ályktanir