Pöbbarölt
Ég veit ekki hvenær,
hvernig né hvar,
ég fékk eina hugmynd
og gekk inn á bar.

Þar sátu tveir rónar,
einn með neftóbaksdós.
Hinn útí horni,
úr maganum jós.

Angandi ilmur
af ælu og bjór,
ég gat ekki meira,
gekk út og fór.


 
Hrund Þórisdóttir
1979 - ...


Ljóð eftir Hrund

Verður varla verra
Litla Ljót.
Hún Urður.
Viskusmælki
Það sem krökkum dettur í hug
Hugarflugur
Pöbbarölt
Alveg sama
Arrgghh!!
Algleymi
Nauðgun
Ástleysi
Hringrás snáðanna