Fordómar
vinur
þegar fáfróður hugur þinn
dæmir ásjónu mína
þegar hatursfull augu þín
særa hörund mitt
þegar forhert hjarta þitt
smánar uppruna minn
þegar krepptur hnefi þinn
misþyrmir tilveru minni
þegar eitruð tunga þín
hæðir ást mína
mundu þá
að ég er faðir þinn og bróðir
systir þín og móðir
manneskja
eins og þú
þegar fáfróður hugur þinn
dæmir ásjónu mína
þegar hatursfull augu þín
særa hörund mitt
þegar forhert hjarta þitt
smánar uppruna minn
þegar krepptur hnefi þinn
misþyrmir tilveru minni
þegar eitruð tunga þín
hæðir ást mína
mundu þá
að ég er faðir þinn og bróðir
systir þín og móðir
manneskja
eins og þú