Lyngyndi
Ljómar í lynginu
litfagurt haust
með blómlegu berjunum sínum
og glitrandi glófögrum línum.
Tindrandi tárin
tignarlegt róf
af litanna leikandi straumum.
Unaðsleg ásýnd
í auga mitt óf
undravert yndi af draumum.  
Jóhann Guðni Reynisson
1966 - ...


Ljóð eftir Jóhann Guðna Reynisson

Djásn
Lyngyndi
Vatnið
Ávextir
Þokan
Sólin og hafið
Glæsta jurt
Lífsgæðavalsinn
Þú
Vetrardætur
Þau
Amen