ljót eldhús
Við erum tvær sálir í krukku
á ísskáp í ljótu eldhúsi
sem er lítið og illa þrifið
en dugar þó oftast.

Einn dag verður krukkan
tæmd í ljóta vaskinn
og kannski þá förum við
í aðrar krukkur í öðrum
ljótum eldhúsum.  
Frikkx
1969 - ...


Ljóð eftir Frikkx

Fuglinn og vegurinn
Samband Nr 9
Augun þín
Í dag
Ég tvö
Dauð ljóð
Símtal til Guðs
ljót eldhús
Ein hverf