Nýr dagur í frumskóginum
Syngdu litríki fugl!
Syngdu sólinni uppkominni söng
Þendu vængi þína úr gulli
og fagnaðu nýjum degi.
Græna hjarta
sem slærð fyrir það líf sem þú átt
umvefðu mig í hlýjan faðm þinn
og leyfðu mér að anda þig.
Ekki gráta þau okkar sem féllu í nótt
heldur gleðstu!
yfir því sem fæðist í dag!
í dag!
vaktu með mér meðan hin sofa
vaktu með mér meðan hin vaka
og ekki hætta að anda
Syngdu sólinni uppkominni söng
Þendu vængi þína úr gulli
og fagnaðu nýjum degi.
Græna hjarta
sem slærð fyrir það líf sem þú átt
umvefðu mig í hlýjan faðm þinn
og leyfðu mér að anda þig.
Ekki gráta þau okkar sem féllu í nótt
heldur gleðstu!
yfir því sem fæðist í dag!
í dag!
vaktu með mér meðan hin sofa
vaktu með mér meðan hin vaka
og ekki hætta að anda
Samið í Amazon á einhverju flakki þar;)