Armar
Armar á engilbjartri nóttu
utan um holdið
sökktir undir sæng.
Er ég dáinn, og farinn til himna?
Eða er það bara andartakið sem er svo fallegt
að mér finnst sem ég svífi?
Undurfegurð heldur í andardráttinn
og draumurinn umkringdum grænum kemur í hillingum
og flýgur með mig til annarra pláneta.
Sólin slær bjarma sínum á augun
sem opnast,
og finna fyrir.
Armar á engilbjörtum morgni
utan um holdið
sökktir undir sæng.
utan um holdið
sökktir undir sæng.
Er ég dáinn, og farinn til himna?
Eða er það bara andartakið sem er svo fallegt
að mér finnst sem ég svífi?
Undurfegurð heldur í andardráttinn
og draumurinn umkringdum grænum kemur í hillingum
og flýgur með mig til annarra pláneta.
Sólin slær bjarma sínum á augun
sem opnast,
og finna fyrir.
Armar á engilbjörtum morgni
utan um holdið
sökktir undir sæng.