án titils (en innihaldsríkt)
Við kaupin á nýjum og notuðum bíl
skal spenna upp hólfin og annað með sýl.
Þar leynst geta púkar og forynjur jafnt,
lofa þér griðum en bíta þig samt.
Hyskið a tarna það virðir ei neitt!
Jú: krossmarkið bjarta og brennandi heitt.
Sjúkrabíll sýnu af ófreskjum fyllstur:
lík-andinn sjálfur er langtum þar illstur.
Dekkjunum gefa skal vandlegan gaum,
varast skal sólaðan spúandi flaum.
Í radía torinn skal vígðvatni hella:
óblessað hátveiro það þykir della.
Mundu: ef farið er bíldags um helgi
túr um að keyra á bensínsins svelgi:
Blessa skal utanvið, drottni sé dýrð,
innaní líka og illskan mun rýrð.
skal spenna upp hólfin og annað með sýl.
Þar leynst geta púkar og forynjur jafnt,
lofa þér griðum en bíta þig samt.
Hyskið a tarna það virðir ei neitt!
Jú: krossmarkið bjarta og brennandi heitt.
Sjúkrabíll sýnu af ófreskjum fyllstur:
lík-andinn sjálfur er langtum þar illstur.
Dekkjunum gefa skal vandlegan gaum,
varast skal sólaðan spúandi flaum.
Í radía torinn skal vígðvatni hella:
óblessað hátveiro það þykir della.
Mundu: ef farið er bíldags um helgi
túr um að keyra á bensínsins svelgi:
Blessa skal utanvið, drottni sé dýrð,
innaní líka og illskan mun rýrð.