Um auðtrú hins nakta karlmanns
Ég gæti horft í augun á þér
og logið því blákalt
að enginn hafi nokkru sinni snert mig
eins undursamlega og þú.
Að önnur eins sæla geti vart
fyrirfundist í gjörvöllum heiminum.
Ég gæti látið þig halda
að þú værir að svipta af mér hulu
eða losa mig úr viðjum fortíðar minnar.
Ég þyrfti bara að verða niðurlút,
skammast mín eilítið fyrir líkama minn
og láta þig halda að þú værir
smátt&smátt að frelsa mig
undan blygðuninni
og það gæti leitt til góðs.
Það gæti farið svo
að sjálfstraust þitt efldist
í beinu samræmi við blekkingu mína
og að eftir því sem ég renndi
sterkari stoðum undir trú þína
á sjálfum þér sem Elskhuga heimsins,
myndi þér þykja vænna um manneskjuna
sem ég þættist vera
og legðir meira kapp á að
láta hana titra&skjálfa af frygð
undan fimum hreyfingum tungu þinnar.
Mig langar ekkert að gera þetta.
Sannleikurinn (sem við þurfum ekkert
að ræða) er sá að á undan þér
hafa komið og farið þónokkrir menn;
sumir þeirra hreinlega komu -og fóru
en aðrir stóðu sig með stakri prýði
því langar mig ekkert að gera þetta
en mig langar að þú vitir
að ég gæti.