Endurómur af andartaki
Blikkaðu bjarta augnsvipnum
í átt að þögninni sem litaði samtal okkar
um fortíðina áðan,
í bláu hylki við höfnina.
Þú breytist í sinfóníu í eyrunum
-sem þau endurvarpa óminum af röddinni þinni
og verður að listaverki eftir Dalí í huganum
-túlkanleg á svo marga vegu, allt að því óskiljanleg.
En samt svo falleg
Rigningin
verður sem upphaf að einhverju nýju
Hverju? Ég veit það ekki.
Svo ég leyfi framtíðinni að verða eins og rigning:
hún kemur bara, hvernig sem hún verður.

--til Ebbu