Friður


Þegar þú opnar aftur augun þín.
Þá breytist allur heimurinn.
Friðurinn leggst yfir mig.
Er ég byrjuð að finna til?
Súrefnislaus.
Þreytt en hraust.
Þegar þú opnar aftur augun þín.
Og það lifnar inn í mér tilfinning.
Um hvað það er sem skiptir,
öllu máli.
Dauf að vakna við lífinu.
Stíf að taka við hamingju.
Laus í loftinu.
Hörð á gólfinu.
Þegar þú opnar aftur augun þín.
Ljósið lifnar við og hreyfingin.
Er ég byrjuð að finna til?
Er ég byrjuð að finna til?
Þegar ég dreg andann inn um munninn minn.
Og gamlir eldar brenna á ný.
Þegar þú opnar aftur augun þín.
Þá breytist allur heimurinn.
 
Lilja Dögg
1975 - ...


Ljóð eftir Lilju Dögg

Þræðir
Mundu
Hiti
Krampakast
Mikilmennskubrjálaði
Nálús
XXXXXX
Shy is my sun
Down
Flawlessly beautiful
Forgive&forget
Madly
Sinner&Saint
Turn me off
Tilfinningin
Friður
finn ég mig
Næturferli
Transmit