Sósulitur
Ég lagði á borð á hverju kvöldi
fyrir fjölskyldu mína
mat fyrir 4

hvíta hreinskilni
bleika gleði
græna þolinmæði
gula samvisku
svarta reiði

og sósu

\'\'bara svona til að hafa þetta fínt\'\'


skyndilega veiktust þau öll,
voru lögð inn á spítalalalala....
lækningamaðurinn sagði að niðurstöður blóðrannsókna sýndu ástleysi!

ástleysi kona! gargaði hann

að gefa þurfti þeim öllum rauða ást beint í æð

sjálfselskan var þá í alvörunni að drepa mig?

þegar ég kom heim af spítalanumnumnum
áttaði ég mig á því

Sósuliturinn!  
Ósk Erling
1980 - ...


Ljóð eftir Ósk Erling

Malt
Lopi
Andmæli malt
ást-ar-þrá-hyggja
ástarsími
Sósulitur
Orða illgresi
gjöf
Próf
Fiskur
Kúbein
Svo svo svo...
Ástkonan
Berjamó
Sparaðu
Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu
Leiðinlegt ljóð
þrá
Norðurljósahaf
Þrjátíu og sjöþúsund og fimmhundruð mínútur
Af hjartans list
94-13911
Einstakur á(vax)stariðnaður