Þrjátíu og sjöþúsund og fimmhundruð mínútur
Hvernig ætlarðu að horfa á mig
þegar við loksins sjáumst
ganga móts hvort öðru
með hjörtu sem hamast ótt og títt
missa jafnvel úr slag.

Hvernig ætlarðu að snerta mig
þegar við stöndum móts hvort öðru
skynjum löngun hvors annars
hitann frá hvort öðru.


Hvað ætlarðu að segja
þegar við loksins getum talað saman

saman

eftir alla fjarlægðina.

,,hvað segir þú gott'' eins og í símann?

Ég veit hvað ég ætla segja

horfa á þig

snerta.



 
Ósk Erling
1980 - ...


Ljóð eftir Ósk Erling

Malt
Lopi
Andmæli malt
ást-ar-þrá-hyggja
ástarsími
Sósulitur
Orða illgresi
gjöf
Próf
Fiskur
Kúbein
Svo svo svo...
Ástkonan
Berjamó
Sparaðu
Helsti sérfræðingur um skotvopn í landinu
Leiðinlegt ljóð
þrá
Norðurljósahaf
Þrjátíu og sjöþúsund og fimmhundruð mínútur
Af hjartans list
94-13911
Einstakur á(vax)stariðnaður