Smeyk
Ég er ekki hrædd við þig.
Heldur smeyk við ímyndina af þér,
ímyndina um þig og mig,
og tilfinninguna að hafa þig hér.

Ég er smeyk við að elska þig,
og kannski verið elskuð.
Kannski er ég skrítin,
en það veit bara Guð.

Ég er smeyk við þetta stóra, litla,
sem mun kannski hjarta mitt fylla.
Þá mun ég af þér dást,
af kærleika og ást.

Ég er smeyk við ástina,
Eða kannski hrædd?
En stundum á kvöldin
er ég tárunum mædd,
Því þú ert ekki hér.
Hér, hjá mér.
 
Maríanna
1989 - ...


Ljóð eftir Maríönnu

Love is...
Smeyk
ég elska þig
Við bæði
I don\'t understand
Buxurnar mínar
To my dearest brother
(enginn titill)
Dear little friend
Gelgja eins og ég
Hjartað þitt og augun blá
Slöknað hefur á eldinum
Darkness
Greddupúki
Leiðindafólk
Hlaupið í gegnum hugsanir
Losti
Baldursson
Sorry
Tears of love
The knight of my dreams