Í húmi hjartans
Skuggar hugsana minna elta mig uppi,
ég bið þess að þeir finni mig ekki ,
ég reyni að fela mig en það stoðar ekkert,
ég reyni að hlaupa en það hjálpar mér tæplega úr þessu.
Þig geymi ég í hjartanu,
hugsanirnar geymi ég með sjálfri mér
og elskuna tjái ég engum nema þér,
því það er lítið gagn í að segja þeim,
þau skilja ekki, enda skil ég það ekkert betur,
af hverju ég er fallin, fyrir þér.
Ef þau þekktu manninn sem þú hefur að geyma
þá þyrfti ég ekki að bíta frá mér og verja þig
þá þyrfti ég heldur ekki að fela þig innra með mér.
Ég vil ekki að þú sért leyndarmálið mitt,
því ég vil að allir viti, að sama hvað verður,
þá áttu þér stað hjá mér, hér í húmi hjartans.

Allur réttur áskilinn höfundi