Orðsending til almættisins
Send þú mér engil
með blessun ómælda
og send þú mér lífsneista
sem aldrei slokknar
og vel á minnst-
um leið máttu veita mér
ögninni lengri tíma
hér á jörð
svo ég fái lokið leit minni
að tilganginum
sem virðist svo hulinn

Oft velti ég því fyrir mér
hver tilgangur þinn sé í raun
með því að veita mér þetta líf
sem þegar yfir er litið
virðist aðeins
ómerkilegt augnablik

og napurleikinn
sem hefur heltekið þessa jörð ?

Já, ég spyr
hvar fékkst þú þá hverfulu hugmynd
að skapa mann ?  
María Hafþórsdóttir
1975 - ...


Ljóð eftir Maríu Hafþórsdóttur

Játning
Endurfæðing
Skömm
Endalok
Von
Einhver
Píslargangan
Ástin
Til þín
Piltur og stúlka
Orðsending til almættisins
Kom
Þorravísa
Morgunn
Meðan álfarnir dansa
In a distant world
Alsæla
Þú
Spegilmynd
What am I to you ?