Meira en veðurspá
Í lægðarmiðjunni er áttleysa
og kærkomin kyrrð
fyrir þreytta sjóara
er hún stefnir norður í dumbshaf
en þar fyrir utan
í milli þéttra þrýstilína
ýfast upp brimkaldar bárur
og lægðin ber með sér
inn á klettótta ströndina
meira en veðurspá
fer inn yfir landið
svo allt verður
á tjá og tundri.
og kærkomin kyrrð
fyrir þreytta sjóara
er hún stefnir norður í dumbshaf
en þar fyrir utan
í milli þéttra þrýstilína
ýfast upp brimkaldar bárur
og lægðin ber með sér
inn á klettótta ströndina
meira en veðurspá
fer inn yfir landið
svo allt verður
á tjá og tundri.