Allt sem við áttum
Allt sem við áttum var ekkert
og ekkert er allt og ég veit
að það eina sem var er búið
og aldrei var ást okkar heit.
Ég gæli við gærdagsins ljóma
og glími við blóð mitt í dag
ég fel mig í fjarlægum skugga
og flauta þitt síðasta lag,
Aldrei var morgunn né máni
og ég man ekki lengur neitt
af því sem þú bauðst mér uppá
og mér þykir það leitt.
Vertu sæl mín veröldin sæla
og víst varstu sæl einn dag
á morgun er gærdagur gamall
en glampi´ út við sólarlag.
og ekkert er allt og ég veit
að það eina sem var er búið
og aldrei var ást okkar heit.
Ég gæli við gærdagsins ljóma
og glími við blóð mitt í dag
ég fel mig í fjarlægum skugga
og flauta þitt síðasta lag,
Aldrei var morgunn né máni
og ég man ekki lengur neitt
af því sem þú bauðst mér uppá
og mér þykir það leitt.
Vertu sæl mín veröldin sæla
og víst varstu sæl einn dag
á morgun er gærdagur gamall
en glampi´ út við sólarlag.