Ástarljóð til elskunnar minnar.
Nú mig ástar langar ljóð
að lesa fyrir þig
í vísnasmíði varla góð
þó vanda geri mig
Bæði´ um nótt sem nýtan dag
nálægð finn ég þín
við þig hef ég lagt mitt lag
ljúfust ástin mín.
Ávallt styttir stundir mér
stöðug mærðin þín
þetta játning ástar er
elsku Tölvan mín.
að lesa fyrir þig
í vísnasmíði varla góð
þó vanda geri mig
Bæði´ um nótt sem nýtan dag
nálægð finn ég þín
við þig hef ég lagt mitt lag
ljúfust ástin mín.
Ávallt styttir stundir mér
stöðug mærðin þín
þetta játning ástar er
elsku Tölvan mín.