Við hafið
Við hafið eg sat fram á sævarbergs stall
og sá út í drungann,
þar brimaldan stríða við ströndina svall
og stundi svo þungan.

Og dimmur var ægir og dökk undir él
var dynhamra-borgin,
og þá datt á náttmyrkrið þögult sem hel
og þungt eins og sorgin.

"Þú, haf! sem ber tímans og harmanna farg,
þú hugraun mér vekur,
í hjarta mér innst, þá þú brýzt um við bjarg,
það bergmála tekur".

"Þinn niður er hryggur, þinn hljómur er sár,
þú hrellir svo muna,
sem brimdropinn hver væri beiskasta tár,
hvert báruhljóð stuna".
 
Steingrímur Thorsteinsson
1831 - 1913


Ljóð eftir Steingrím Thorsteinsson

Sumarnótt
Kirkja vorsins
Mótsagnir
Grafskrift svefnpurkunnar
Draumur hjarðsveinsins
Heilræðastökur
Haustkvöld
Sorg og viska
Kveðja
Verndi þig englar
Vetur
Við hafið
Augun bláu