sumardagur
myrkur
vindur
sumar
regn
bylur á rúðunni
slær af lemjandi krafti
ég bíð þess að því sloti
það blæs byrlega, duglega
af ofstæki
trúarjátningin glymur í eyrum okkar
strandirnar bíða betri tíma
bíða mikinn skaða
á kaffistofunni situr ljóðið
sýpur kaffi
heyrir í útvarpinu leiðinlega tónlist
og dánartilkynningu um sig
inn um lúguna bréf
frá andskotanum
hann er lögfræðingur
heimtar að fá að heimta inn
ég segi þvert nei
langt nei
slæmt nei
nei sem hefur afdrifaríkar afleiðingar
afkastamiklar afleiðingar
aflífandi afleiðingar
afarkosti
vindur
sumar
regn
bylur á rúðunni
slær af lemjandi krafti
ég bíð þess að því sloti
það blæs byrlega, duglega
af ofstæki
trúarjátningin glymur í eyrum okkar
strandirnar bíða betri tíma
bíða mikinn skaða
á kaffistofunni situr ljóðið
sýpur kaffi
heyrir í útvarpinu leiðinlega tónlist
og dánartilkynningu um sig
inn um lúguna bréf
frá andskotanum
hann er lögfræðingur
heimtar að fá að heimta inn
ég segi þvert nei
langt nei
slæmt nei
nei sem hefur afdrifaríkar afleiðingar
afkastamiklar afleiðingar
aflífandi afleiðingar
afarkosti