tunna
þung tunna
þung þreyta
illvirki
gangvirki tímans
sundurleit þjóð
í leit að hefnd
sláum sláum sláum fastar
berjum sýkina úr þeim
úrbeinum frjálshyggjuna
tökum blóð
sendum í rannsókn
sérhver maður hefur úr þessu að moða
sérhverjum manni býðst eilíf hefnd
fátækur maður ber bumbur og situr af sér líf sitt
ríkur maður fer af landi
snýr eigi aftur
hann hefur sofið af sér hefnd
í kassanum flaksast myndir
en öllum er sama
allir fá sér meira
brjóta múra sorgarinnar
þung þreyta
illvirki
gangvirki tímans
sundurleit þjóð
í leit að hefnd
sláum sláum sláum fastar
berjum sýkina úr þeim
úrbeinum frjálshyggjuna
tökum blóð
sendum í rannsókn
sérhver maður hefur úr þessu að moða
sérhverjum manni býðst eilíf hefnd
fátækur maður ber bumbur og situr af sér líf sitt
ríkur maður fer af landi
snýr eigi aftur
hann hefur sofið af sér hefnd
í kassanum flaksast myndir
en öllum er sama
allir fá sér meira
brjóta múra sorgarinnar
Orð að kvöldi 4. október 2010