nýtt líf
steingeldar hugmyndir
ég flosna upp úr eltingaleiknum
ég finn mér annað
ég heilsa nýjum venjum
samt ekki
enginn er fullkominn hræsnari
enginn verður bættari af nýju lífi
allt mun sölna
ég fleygi gömlum gildum
hlæ að þeim
ég er sjálfur horfinn í annan heim
fullan af myrkri
ég flosna upp úr eltingaleiknum
ég finn mér annað
ég heilsa nýjum venjum
samt ekki
enginn er fullkominn hræsnari
enginn verður bættari af nýju lífi
allt mun sölna
ég fleygi gömlum gildum
hlæ að þeim
ég er sjálfur horfinn í annan heim
fullan af myrkri