Jónas Hallgrímsson
Ef þú finnur frávita mann
feiminn að skilja allt sem hann kann
orðlaus magnvana og myrkfælinn
sem man ekki neitt nema munnmælin
þá hittir þú fyrir sjálfan þig
og þá skaltu vinur minnast á mig
því ég er hér til að veita þér von
því ég veit um Jónas Hallgrímsson.

Í fjallasölum eða í fjarlægri sveit
á fúabryggju í atvinnuleit
hvað sem verður og hvað sem var
hvar sem þú ert þá er hann þar
og þá hittir þú fyrir sjálfan þig
og þá skaltu vinur minnast á mig
því ég er hér til að veita þér von
og ég veit um Jónas Hallgrímsson.

Hann á það ljóðið sem ljúfast er
hann leið fyrir ástina í brjósti sér
ég veit hver hann er og hver hann var
og hvar sem þú ert þá er hann þar.

Í biðröðum að bíða eftir mat
með betlistafinn, á vasanum gat
í ræsinu með rónunum
rétt hjá ruslatunnunum
þá hittir þú fyrir sjálfan þig
og þá skaltu vinur minnast á mig
því ég er hér til að veita þér von
og ég veit um Jónas Hallgrímsson.

Hann á það ljóðið sem ljúfast er
hann leið fyrir ástina í brjósti sér
ég veit hver hann er og hver hann var
og hvar sem þú ert þá er hann þar.


Ef þú finnur frávita mann
feiminn að skilja allt sem hann kann
orðlaus magnvana og myrkfælinn
sem man ekki neitt nema munnmælin
þá hittir þú fyrir sjálfan þig
og þá skaltu vinur minnast á mig
því ég er hér til að veita þér von
því ég veit um Jónas Hallgrímsson.
 
Guðni Már Henningsson
1952 - ...


Ljóð eftir Guðna Má Henningsson

Ófædd andvana
Reikistjarna
Ég leitaði.
Getsemane.
MYNDIR OG MINJAGRIPIR.
Ástarsaga
MANSTU ÞÁ VINDA
Vögguvísa.
Af himnum ofan
Gleym mér ei.
Babylon borg ánauðar
Siggi Sigg.
Úlpuklædd sól
Ég er.....
Komdu fagnandi.
Þar sem jörðin skalf.
Ég veit.
GUNNU LEIÐ.
Ekki meir.
Ég er ekki.
Sögulok
Hér er mitt
Sá ekki til sólar
Blómin á botninum
Kvæði um Guð og menn
Ergo
Allt sem við áttum
Ég á þig
Við getum ekki dansað meir
Mánudagur.
Við héngum saman.
Softly and tenderly ný þýðing.
Sólarsamba # 2
Skáldaðu skáldmenni
Meyr
Seint
Svefnlaus nótt
Í nótt
Gjáin
Þú
Steinninn sem hamast.
.........og svo ertu farin.
Fóstra mín.
Fuglar
Endalokin
Blóm
Steinn
Veður
Bergperlur
Leit
Sagnlaus
Tvíburinn minn.
Ekki minnast á morgundaginn.
Dimmar stundir
Norðanáhlaup
Regn
Í minningu vindsins
Vorvísa
Gærdagur
Presturinn
Í mánaskini
Það er ennþá maí.
Myndir
Fótspor
Perla
Glíma
Hönd í hönd
Esja
Glíma
Regnboginn grætur
Augnablik
Stúlkan mín.
Aladdinn og lampinn
Járnsól
Myndir
Nýr máni
Jónas Hallgrímsson
Litir