Þyrnirós

þú birtist mér í draumi í nótt
raunverulegri en nokkru sinni í vöku
-ó svo langt síðan-
og ég elskaði þig skilyrðislaust
ó þú Baldurs kona

þremur árum of seinn
píni ég sjálfan mig
hryggbrotinn
eins og þú
þremur árum of fljótt

þú elskaðir mig þá
en ég ekki þig
fyrr enn löngu seinna
en þá varstu hólpin
í örmum annarrs

já vatnið er djúpt og kalt
nakinn sekk ég dýpra og dýpra
ég er villtur í huga þínum
en þú ert efst í mínum
dreymi þig vel mín kæra
 
Sigurgeir F
1977 - ...


Ljóð eftir Sigurgeir F

Draumur
rauðir dropar
logn
Þyrnirós
Modern life is rubbish
fljúgðu maður, fljúgðu sjálfur
stundargaman
litla stúlkan og frjálshyggjumaðurinn
Sumarið er tíminn