Myrkur : Kóngurinn
Ég sit á háum tindi Hraundranga
Ég sit og horfi niður í dalinn
Hægur vindurinn blæs gráum þokum
Kyrrðin talar dáleiðandi röddum.

Ég held fastar í klettabrúnina
Ég sé þoku að neðan og ofan
Dauft ljós á himni strýkur þokuna
Hvort skyldi ég falla eða rísa?

Ég finn eftir stund fyrir skelfingu
Ég hugsa ég gæti fallið niður
En hvers vegna hæfi ég ekki jörð?
Hvorki tungl né sól, dagur né nótt veit.

Ég finn mjög skyndilega fyrir ró
Ég skil loksins af hverju ég er hér
Þokan umvefur mig líkt og teppi
Raddir þagna og ég sef, svífandi  
Kristján Jóhann Júlíusson
1995 - ...
Ort 2014


Ljóð eftir Kristján Jóhann Júlíusson

Kvalir
Hamur/Beisli
Myrkur : Kóngurinn
Andvaka - Partur II
Andvaka - Partur III
Upplifun
Andvaka - Partur I