Hefurðu heilsu?
Þegar varirnar renna til veður skrítinn svipur á verðgildi fjárins. Fjárinn verður ósýnilegur ef við kreppum lófann og hugsum okkur vel fram hjá flestum bátunum sem vagga og vagga og nú fer mig að sundla ef pottarnir eru of heitir fara gamlar konur að dæsa, kýr dæsa, konur dæsa, hryssur dæsa og súkkulaði er dísætt.
Hvar koma tennurnar inn þegar frumsýningargestirnir gapa út ganginn gangandi og verða svo til við endann. Ef við komum nógu mörg á sýninguna þá hverfum við öll að lokum og þá er þetta búið.
Hvar koma tennurnar inn þegar frumsýningargestirnir gapa út ganginn gangandi og verða svo til við endann. Ef við komum nógu mörg á sýninguna þá hverfum við öll að lokum og þá er þetta búið.
Aldrei virða vangaveltur, vaða viðstöðulaust yfir.