Dyr opnast
Dyr opnast
Hugurinn opnast
Hjartað opnast
Heimurinn opnast

Draumarnir rætast
- vegna þín
- og aðeins vegna þín

Við verðum eitt
- við verðum fjögur
- vegna okkar
- aðeins vegna okkar, og Hans

Vegurinn opnast
Við göngum hann hönd í hönd
Í átt til sólarlags

Dyr Paradísar opnast
- fyrir okkur
- að eilífu
 
Dýrlaug
1964 - ...
Allur réttur áskilinn höfundi


Ljóð eftir Dýrlaugu

Á limminu
Dulítill hvolpur
Þokumistur
ÞÖGULT HRÓP
Móðurást
Aðeins þú
Dyr opnast
Hliðstæð veröld
Einstök sál
digrir dropar
Áhugi í þögninni
Hraðbraut (ó)gæfu
ef aðeins
ég er
von