Norwich City
Mér fannst ég kominn heim
og ég upplifði þig eins og konu

þú varst fersk og fjörug
en samt eins og svolítið sveitó

þú varst í gömlum kjól
en samt eins og sígild

þú heillaðir mig upp úr skónum
og ég vil hreiðra um mig,
inní þér
 
Broskarl
1962 - ...


Ljóð eftir Broskarl

Hugsun sem ekki má
Örþrifaráð
Missir í sorg
Til Friðnýjar og Ísólfs
Und á sál
Norwich City
Óvæntur glaðningur
Bæn
Æskuminning
Í minningu Soffíu frænku