Bestur
Ég hef aldrei litið þig augum,
þó ég þekki þig mætavel,
því ég veit það varst þú og þinn sonur
sem frelsuðu sál mína\'úr Hel.
Ég þrái hönd þína\'að leiða,
og fylgja þér hvert sem er
og hætta\'að hlaupa á undan
eða drolla á eftir þér.
Því í vonlítilli sál minni
þú tendrað hefur bál.
Þú gefið hefur mér von á ný
og lýst upp dimma sál.
Þú einn átt þökk mína skilið
fyrir framtíð langa og bjarta
því lausnina þú færðir mér
og breyttir mínu hjarta.
þó ég þekki þig mætavel,
því ég veit það varst þú og þinn sonur
sem frelsuðu sál mína\'úr Hel.
Ég þrái hönd þína\'að leiða,
og fylgja þér hvert sem er
og hætta\'að hlaupa á undan
eða drolla á eftir þér.
Því í vonlítilli sál minni
þú tendrað hefur bál.
Þú gefið hefur mér von á ný
og lýst upp dimma sál.
Þú einn átt þökk mína skilið
fyrir framtíð langa og bjarta
því lausnina þú færðir mér
og breyttir mínu hjarta.
Allur réttur áskilinn höfundi