ljod1
Allt sem ég hef um þig að segja
Verður ekki komið á blað.
En skömminni skárra er það
Að tjá sig eitthvað, en að þegja.

Það er svo margt hefur þú gefið mér.
Þú gafst mér ör sem aldrei grær
Og hjarta sem aldrei hlær.
Ó hvað er ég heppin að hafa kynnst þér.

Ég þekki þig strákur, betur en þú veist.
Og sál þín er svartari en hún er ljúf
Og mýkri en hún er hrjúf
En veit ég vel að þú getur breyst.

En þú vilt það bara\'ekki
Því þú kýst ekkert annað
En að gera það sem er bannað
Og þú einn, færir sjálfan þig í hlekki

Hlekki dauða og dapurleika
Sem ekkert okkar vill sjá
En þú virðist hinsvegar þrá
En ég veit betur, því þú kannt ekki?að feika.

Stór kall með lítið hjarta
Er það eina sem þú ert
En það er umhugsunarvert
Að þú sjáir dag einn, ljósið bjarta.
 
Birta Jónsdóttir
1982 - ...
Allur réttur áskilinn höfundi


Ljóð eftir Birtu Jónsdóttur

Þorri
Þú breyttir mér
Mamma
Annar júní
Ég man
Sólin mín
Svo fjarlægur
Dear friend
Thanks
Takk fyrir engilinn minn
Bangsi
hann á afmæli í dag....
án titils
I\\\'ll remain yours
It\'s over
Let go of everything
All I ask of you
Kella
......nr.1.....
.....nr.2.....
Synd
kallinn minn
Ilmurinn þinn
Í húmi hjartans
Ljósið mitt
Nafnlaust ljóð
Fyrirgefðu Guð
Ég þakka þér
Dagur án nætur
Freisting
7 weeks
You
No more regrets
enginn titill
Þú
Lystarstol
Þú um þig frá þér til þín
Thank you for it all
Loforð
farinn
Á dögum sem þessum
Meira um þig
Jesú
Bestur
þú færir mér betri morgundag
ljod1
ljod2
þú og ég
Blame me
Mamma mín
Til afa