Viðhald
Eins og steinsteyptir veggirnir
líður mér eins innan í mér
svo köld viðkomu
og eitthvað svo hart
sem þarf að koma við

Það tæki langan tíma
að brjóta það niður

Það þarf að fara varlega
svo að ytri byggingin
skemmist ekki

ekkert er eins sorglegt
að sjá
falleg hús hrynja
vegna lítils viðhalds  
Finney Rakel
1983 - ...
þetta er bara pæling um að maður þarf að hlúa að sjálfum sér eins og húsunum sínum. Fallegu húsin eru manneskjunar.
samið í feb 2002


Ljóð eftir Finney Rakel

Viðhald
FrostFugl
Kveðja til ástvinar
Hraun
Fjaður
sumar
hugarangur
27.október 2002 Sunday, Bloody Sunday
Hughrif
vængbrotinn
o f u r l i ð i
leigubílaferð
S22
Gleymdur lykill
Úrklæðsla
Persónuleikinn sem dó
Birting