kona
Takmörkuð endaleysa á sér stað
Þótt endir sé byrjun
og byrjun sé endir
sem endar á byrjun
þá virðist þetta alltsaman
enda
endrum og eins
þegar aftur og aftur
er aftur og aftur
sem aldrei er alltaf
og oftast er sjaldan
þá kemur það fyrir
stundum
að alltsaman
stoppar
og þá ætíð
og endalaust ætíð
þá hundraðfalt ætíð
að eilífu ætíð
sem það stoppi ætíð á
þér
kona
Þótt endir sé byrjun
og byrjun sé endir
sem endar á byrjun
þá virðist þetta alltsaman
enda
endrum og eins
þegar aftur og aftur
er aftur og aftur
sem aldrei er alltaf
og oftast er sjaldan
þá kemur það fyrir
stundum
að alltsaman
stoppar
og þá ætíð
og endalaust ætíð
þá hundraðfalt ætíð
að eilífu ætíð
sem það stoppi ætíð á
þér
kona