Heimilislegheit
Heimilisleg lyktin sómir sér vel í íbúðinni.
Maður á að vera heimilislegur í sér og passa það vel að svíkja ekki hjarta sitt þegar maður velur sér andrúmsloft.

Heimilislegur kötturinn kúrir sig notalega í heimilislega sófanum mínum.

Heimilislegt sjónvarpið stendur líkt og stjórnsamur , en vinalegur , eineygður kapteinn úti á miðju gólfi og talar í sífellu um allt og ekkert, á milli heimilislegra auglýsinga.

Heimilislegar bjórdósirnar liggja tómar á kómískum og mjög órökréttum stöðum á heimilislegu gólfinu.

Heimilslegt kjúklingslæri er farið að ljóstillífast á svalandi eldhúsflisunum á meðan ein og ein frönsk kartafla gefur frá sér lykt, sem að aðeins er á færi lífsreynds myndlistarmanns að lýsa.

Heimilisleg eiginkonan dormar í brennivínsmóki við fallega ryðgaðan ofninn með fagurblátt , heimatilbúið glóðarauga.

Heimilisleg kúkarönd hefur bæst í hóp tveggja heimilislegra kúkaranda ofan í gulslykjóttu salernisskálinni okkar, henni Miss Gustavsson.

Já við erum sannkallaðir heimalingar og kunnum hvergi betur við okkur en heima hjá okkur. Við reynum að bjóða sem flesta velkomna á okkar heimili og þá höfum við eitt mottó í fyrirrúmi

"Látið einsog heima hjá ykkur góða fólk, ísinn er í frystinum og glösin uppí skáp, heima er best"

Home sweet home skiltið er fyrirtaks öskubakki og ég held að Jói Hnífur hafi verið að reyna að segja mér það í gær þó ég sé ekki alveg viss.  
Viddilitli
1977 - ...


Ljóð eftir Viddilitli

Frægð
Einhvern veginn
Bréf til mömmu(ennþá ópóstsett)
Óraunverulegar konur
Danskur húsgangur
Beiðni
hvíldardagurinn
Kaldhæðni
Í gamla daga
Mæður
nokkur vísubrot
Hláturinn
Gleymska
Can you listen
Köld hönd
Popparinn
Einelti
Flóttamaður( the frontiers are prison)
Atvik!
Byssó
vitneskja
in fact
hausinn hristist þó hann sé kjur
og sýningin heldur áfram
Hlutverk
Blús í H(helvíti)
ég gefst upp
Leikræn tjáning skíthælsins
Stærðarhluttföll afstæðinga
Neonbleik minning
Helgarpabbablús
Það að vakna hlýtur að skipta máli er það ekki
ambíent og tímaritaklippa
Teknóboltinn
hmmm!
Satan
Herðapúðar hótelsstarfsmanns.
Afhverju afi?
Hans hinsta kveðja
Syndsamlegt líferni mitt nær hámarki
Við viljum
Welskt þjóðlag
Í lífsins ólgusjó
Ritskoðun
Lítið ljóð um Terry enskukennara í MH
Misstígur
Bisnessvísa
Varanleikinn er hálka
Dauðinn
Köllun
Ástin mín
Sund
Jón eða séra jón
Stríð
Tíminn
Ljóð
Órökrétt samhengi
Hugleiðing um ástand
Salarstemming.
Takkið
Saga sveitamanns
Af vinum skulum þér þekkjann
Á barmi annars hugar
Hugmyndir
Ég sakna líka.
Reglur um ljóð
Ljóðganga
Guðfræði á byrjunarstigi
Ísland er líka á alnetinu
Sú tilfinning að frelsast
Innöndun
Að bæta við ljóð
Heimilislegheit
Stafsetningaræfing
Ótitlaður tittlingaskítur
Íslenskt landslag
o
útsett innáhöld
Hlustað á raddir hjartans
um mann
Íslenskt baktjaldamakk
Kostir og ókostir
Á eða ekki
Enn ein hugmyndin
Zetan varð mjög snarlega útundan.
Maður í lífinu
Æfing í alvöru
Blablabla
Koníak
Skrambinn
Lipri Ísfirdingurinn
Dauði
Afturgangan
Rapplag ,Sezar A
Friður
Hringrás
Verkur
Líf höfundar
Endurminningar
Maður dettur í poll
Búmm!