o
Hversu oft er ég ekki búinn að reyna að fela mig fyrir svefnleysinu. Ég geng um íbúðina og reyni að hugsa um kindur þvi þegar ég hugsa um kindur þá verður mér kalt og þegar mér verður kalt þá langar mig til þess að sofna. Hins vegar, þegar ég hugsa um kindur þá fyllist ég viðbjóði á sjálfum mér og þegar það gerist þá verður mér flökurt og þá þarft ég að gubba og þegar ég gubba þá standa augun á stilkum, maginn er eins og tómt eldfjall og hugurinn er vakandi einsog drukknandi maður sem sýpur hveljur.
Það er gjörsamlega off fyrir mig að hugsa um kindur.

Ég hef líka reynt að hugsa djúpt. Fyrst leiði ég hugann að tölunni núll því kvikmyndahyggjuvit mitt segir mér að það að hugsa um töluna núll sér djúpt og gáfulegt. Venjulega finnur líkami minn það fljótt á sér ef eitthvað er gáfulegt því að þá syfjar hann. Hins vegar þá gerist það ekki heldur fer öll orkan í að hugsa um það afhverju það sé djupt að hugsa um núll og ég fæ mjög ört vaxandi gáfumannakomplexa og fer í slopp því mér finnst eins og einhver sé að horfa á mig.
Það er fátt heimskulegra en grunnhygginn maður á nærbuxunum um nótt í þykjustuleik af innlifun.
Mig syfjar ekki af tölunni null.

Eftir ýmsar gáfulegar uppástungur verður mér hugsað til Stellu. Hún var með mér í 6.bekk og fékk mjög snemma mjög stór brjóst.
Ég fróaði mér og sofnaði og dreymdi kindur með stór brjost sem stukku í gegnum eldislegna töluna núll.  
Viddilitli
1977 - ...


Ljóð eftir Viddilitli

Frægð
Einhvern veginn
Bréf til mömmu(ennþá ópóstsett)
Óraunverulegar konur
Danskur húsgangur
Beiðni
hvíldardagurinn
Kaldhæðni
Í gamla daga
Mæður
nokkur vísubrot
Hláturinn
Gleymska
Can you listen
Köld hönd
Popparinn
Einelti
Flóttamaður( the frontiers are prison)
Atvik!
Byssó
vitneskja
in fact
hausinn hristist þó hann sé kjur
og sýningin heldur áfram
Hlutverk
Blús í H(helvíti)
ég gefst upp
Leikræn tjáning skíthælsins
Stærðarhluttföll afstæðinga
Neonbleik minning
Helgarpabbablús
Það að vakna hlýtur að skipta máli er það ekki
ambíent og tímaritaklippa
Teknóboltinn
hmmm!
Satan
Herðapúðar hótelsstarfsmanns.
Afhverju afi?
Hans hinsta kveðja
Syndsamlegt líferni mitt nær hámarki
Við viljum
Welskt þjóðlag
Í lífsins ólgusjó
Ritskoðun
Lítið ljóð um Terry enskukennara í MH
Misstígur
Bisnessvísa
Varanleikinn er hálka
Dauðinn
Köllun
Ástin mín
Sund
Jón eða séra jón
Stríð
Tíminn
Ljóð
Órökrétt samhengi
Hugleiðing um ástand
Salarstemming.
Takkið
Saga sveitamanns
Af vinum skulum þér þekkjann
Á barmi annars hugar
Hugmyndir
Ég sakna líka.
Reglur um ljóð
Ljóðganga
Guðfræði á byrjunarstigi
Ísland er líka á alnetinu
Sú tilfinning að frelsast
Innöndun
Að bæta við ljóð
Heimilislegheit
Stafsetningaræfing
Ótitlaður tittlingaskítur
Íslenskt landslag
o
útsett innáhöld
Hlustað á raddir hjartans
um mann
Íslenskt baktjaldamakk
Kostir og ókostir
Á eða ekki
Enn ein hugmyndin
Zetan varð mjög snarlega útundan.
Maður í lífinu
Æfing í alvöru
Blablabla
Koníak
Skrambinn
Lipri Ísfirdingurinn
Dauði
Afturgangan
Rapplag ,Sezar A
Friður
Hringrás
Verkur
Líf höfundar
Endurminningar
Maður dettur í poll
Búmm!