Lítill fugl
sest hjá mér
faðmar mig
svo fast að sér
Alsælan fylgir því
móðurleg hlýjar mér
svo þægilega hlýtt

Ekkert er
merkilegt
Náttúran
fagnar mér
ég er kominn heim

Svíf í burt
Englarnir
kyssa mig
Hugarró
loksins finnur mig

Hlýja mér
hjá hjartarót
móðir náttúru
Ylurinn
svo undurtær
leysir mig héðan  
Birgir Hrafn
1982 - ...


Ljóð eftir Birgi Hrafn

Ást og friður
Opnaðu
Gefðu

Viltu
Friður
Fljúgðu
Rósuljóð