Æfing í alvöru
Að einbeita sér.
Hugsa skýrt um skýrleikan í loftinu.
Horfa í einhverja átt.
Vita afhverju
og hvernig það var
Synda, setja lófa ofan í vatn, finna það smjúga á milli fingranna, gera tvö ess í vatninu og finna hvernig krafturinn fer út í brjóstið og upp í axlirnar, leyfa höfðinu að taka á moti spennunni og hugsa síðan kraftinn til baka í nýtt tak.
Leggja diska á borð
Leyfa timanum aldrei að komast inní hausinn.
Henda öllum klukkunum
Fara í stórmarkaði til að horfa á fólk og slappa af.
Vinna brosandi fyrir einhvern sem þú þekkir ekki.
Þú þarft ekki að þekkja hann/hana þvi þér þykir svo vænt um hann/hana
Þér þykir, vænt um, af alvöru.
Af alvöru hefurðu lært að taka engu sem hinu síðasta né hinu fyrsta.
Alvara breytist úr einhverju þöglu og óskiljanlegu í orðið al vara.
Þú ert var við allt, alltaf.
Þér verður aldrei aftur kalt
engin getur náð þér
ekki tíminn
ekki peningar
ekki guð
ekki ástin
jú kannski ástin
common ég er kominn fram úr sjálfum mér og búinn að klúðra æfingunni.