Fyrsti Kossinn
Við höfðum lengi þráð.
Fylgst með augum löngunar og forvitni glitra okkar á milli.
Daðrið vængjum þanið fiðrildi.
Og loksins kom að því:

Þó maður hafi dýft fótunum ofan í baðkerið og aðlagað sig sælunni, hita baðvatnsins
þá jafnast aldrei neitt við það, eða breytir
unaðnum, hitanum og þegar maður dýfir öllum líkamanum ofan í baðið.

Og maður getur ekki annað en lokað augunum og notið þessa augnabliks; augnablikið þar sem allar áhyggjur hverfa og breytast í rómantísk norðurljós.  
Hj.
1987 - ...


Ljóð eftir Hj.

Karlinn á tunglinu
Maraþonhlaup tilfinninga
Fyrir frið
Gleraugu
Í helvíti á jörðu?
...Aðeins þú
Ljósin í ánni
Hugsun
Ég dó
Píslarvotturinn
Kötturinn
Á dánarbeði
Bylting Hugans
Fyrsti Kossinn
Fugl og Fiskur