Um verkfallið
Undarlegt hve
allt er skrítið
hugsa flestir
virkilega svo lítið?
Hvað er að ske?
Hvað er að ske?
Hvað er að ske?
Er hausinn á ykkur
gerður úr tré?

Kennarar í dái
verkfalls liggja
og bráðum fer að
skyggja.
Þeir ætt\' ekki að
þurfa ölmusu að
þiggja.
-Hafa börnin eitthvað
gott að tyggja
...eða horfa þau
á Paradise Hotel
á Skjá einum?
Ráðamenn ýmist
liggja í leynum
-eða standa upp á
ísjaka einum.
Bera á sig
Parísarkrem
og eru hressir,
þangað til einhver
á ísjakann klessir

Því alla þá
ég hem
hér ég kem!
 
Bergþóra Einarsdóttir
1984 - ...
2005


Ljóð eftir Bergþóru Einarsdóttur

Um verkfallið
Græðgi
Doppóttir froskar segja FFFFF
Staka um ketti
Höfuð mitt er næturhrafn 2508052:27
Sjö hungurverkföll
Systur
Frábrugðið flugtak
Fullt tungl
Eða
Venjuleg líðan
Hrognkelsi
Skrif í myrkri
Nístingur og Doði
RÍKISSTJÓRNIN STELUR
IX Para Bécquer