Kaldhæðni
Í steríógræjum stórmarkaðarins er verið að flytja fréttir.
“Í fyrsta sinn í sögu landsins standa konur nú jafnfætir körlum. Það er liðin tíð að karlinn sitji á rassgatinu og bíði eftir matnum. Við getum hrósað sigri kæru systur”
Kona sem stendur aftast í biðröðinni við kassan lítur sigri hrósandi á næstu konu fyrir framan sem gerir slíkt hið sama og svo koll af kolli þangað til þær vakna allar fimmtíu við það að konurnar við kassana segja þeim að gjöra svo vel og þá muna þær allt í einu eftir þvi að þær eru að verða of seinar heim í matinn og grípa því í hendingu súkkulaðistykki í sárabætur.