Gleymska
1.
Ég steingleymdi að segja ykkur frá
manninum sem glataði
æskunni í
anatomíunni
í
háskólanum.
2.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá
manninum
sem glataði hjartanu
á varðskipinu
þar sem hann
lá á hnjánum
og skrúbbaði
smurolíulegið dekk
eins og
sólin ætlaði
að hætta að
skína á hann.
3.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá
veðurfræðingnum
sem að
varð svo
samdauna
veðrinu
að hún fór stundum
út á veröndina
nakin
eftir að maðurinn hennar var sofnaður
og
bað
lægðirnar
um að
biðja
hæðirnar
um
hret og
hörmungar.
4.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá logsuðumanninum
sem
var skáldið
sem forðaðist
ljósið
og hitan
í
sundlaugunum
6.
Ég steingleymdi
að segja ykkur frá
barnanauðgaranum
sem að vildi
alltaf
eignast son
sem
liti upp til hans
og þæði
hamingjusamur
ferð
með honum
á þrjúbíó.
6.
Öllu þessu
steingleymdi ég
vegna þess
að ég
er maðurinn sem
stend fyrir
framan spegilinn
fram úr hófi
meðvitaður
og
ákveð
að
pissa
í
ruslafötuna
kl
19:26
Ég steingleymdi að segja ykkur frá
manninum sem glataði
æskunni í
anatomíunni
í
háskólanum.
2.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá
manninum
sem glataði hjartanu
á varðskipinu
þar sem hann
lá á hnjánum
og skrúbbaði
smurolíulegið dekk
eins og
sólin ætlaði
að hætta að
skína á hann.
3.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá
veðurfræðingnum
sem að
varð svo
samdauna
veðrinu
að hún fór stundum
út á veröndina
nakin
eftir að maðurinn hennar var sofnaður
og
bað
lægðirnar
um að
biðja
hæðirnar
um
hret og
hörmungar.
4.
Ég steingleymdi
að segja ykkur
frá logsuðumanninum
sem
var skáldið
sem forðaðist
ljósið
og hitan
í
sundlaugunum
6.
Ég steingleymdi
að segja ykkur frá
barnanauðgaranum
sem að vildi
alltaf
eignast son
sem
liti upp til hans
og þæði
hamingjusamur
ferð
með honum
á þrjúbíó.
6.
Öllu þessu
steingleymdi ég
vegna þess
að ég
er maðurinn sem
stend fyrir
framan spegilinn
fram úr hófi
meðvitaður
og
ákveð
að
pissa
í
ruslafötuna
kl
19:26