Farinn
Hvenær ferðu ?
Spyr sálin þig
Þú ferð
Gangan þín hefur tekið tíma
Gangan að mér
En þú ferð
Sérð fallegt ljóst hár, blá augu
Sérð mig
Horfir og ferð
Ég læt þig hlæja,gráta
Ég læt þig elska
En þú ferð

Ég spyr þig ekki afhverju
Þarf ekki að vita svarið
Bara það að þú fórst
Þá veit ég
Vonandi ferðu ekki strax  
brynja
1990 - ...


Ljóð eftir brynju

Logn hvar?
Nýfallinn
Já með þér
Farinn
Skollinn sá
Hvítur Skítur
Pangea
Við
Sárt enni
Orðin hin
Fólkið á þakinu
Illskan
Rósin
Þrá