og sýningin heldur áfram
Þegar ég var lítill drengur
í vorgolu og lóusöngli þá
sór ég þess eið
að byrja aldrei að
reykja
síðan þegar ég var unglingur
sem þráði ástina undir
músíkinni
þá sór ég þess eið
að vera ástinni aldrei
ótrúr
síðan þegar að ég
var maður sem átti
afborganir og alls kyns
afsláttarmiða
þá velti ég mér á bakið
eftir drátt sem ég fékk mér
með viðhaldinu og fékk mér
sígarettu
og velti fyrir mér
alls kyns
prinsippum
í vorgolu og lóusöngli þá
sór ég þess eið
að byrja aldrei að
reykja
síðan þegar ég var unglingur
sem þráði ástina undir
músíkinni
þá sór ég þess eið
að vera ástinni aldrei
ótrúr
síðan þegar að ég
var maður sem átti
afborganir og alls kyns
afsláttarmiða
þá velti ég mér á bakið
eftir drátt sem ég fékk mér
með viðhaldinu og fékk mér
sígarettu
og velti fyrir mér
alls kyns
prinsippum