Helgarpabbablús
Þetta er allt saman að sjatna
hættur að sakna
farinn að safna hári
syndi
hleyp
stæla mig upp
hún er hins vegar í rusli
með barnið
og neyðaraðstoðina
ég er með helgarpabbaglott annan hvorn
föstudag
því borgin er full af dagmömmum um helgar
síðan þegar jólin nálgast
þá kaupi ég hörðustu jólapakka í náttúrunni og skola þakklæti til mín
niður með bjór
I see a red door and I want it paint in black
síðan hengi ég mig eftir að hafa
klárað afsakanirnar
og þegar ég flýg á englavængjum mínum
í átt að einhverju sem ég hélt að væri
ekki neitt
þá sitja fáklæddir Indverjar uppi í tré
og hlæja
(þarna fer einn af þessum heimsku helgarpöbbum frá Íslandi aftur á byrjunarreit)